
Höfuðtólið parað og aftengt
Með pörun er hægt að stjórna því hvaða tækjum er heimilt að tengjast höfuðtólinu.
Para þarf og tengja höfuðtólið við samhæft tæki áður en hægt er að nota það.
1 Slökktu á höfuðtólinu og kveiktu á samhæfa tækinu.
4

2 Ef höfuðtólið hefur aldrei verið parað við tæki eða listinn yfir pöruð tæki hefur verið
tæmdur skaltu kveikja á höfuðtólinu. Hafi höfuðtólið áður verið parað við annað
tæki skaltu halda rofanum inni í 5 sekúndur. Höfuðtólið fer í pörunarhaminn og
græna stöðuljósið byrjar að blikkar hratt.
3 Kveiktu á Bluetooth í tækinu eftir u.þ.b. þrjár mínútur og láttu það leita að
Bluetooth-tækjum. Nánari upplýsingar er að finna í notendahandbók tækisins.
4 Veldu höfuðtólið af listanum yfir þau tæki sem fundust.
5 Sláðu inn lykilorðið 0000, ef beðið er um það.
Hægt er að para höfuðtólið við allt að átta samhæf tæki en aðeins er hægt að tengja
það við tvö tæki samtímis.
Í sumum tækjum gæti þurft að koma tengingunni á að pörun lokinni.
Höfuðtólið tengt handvirkt við tækið sem síðast var notað
Haltu hringitakkanum inni í 2 sekúndur, ef ekkert annað tæki er tengt, eða opnaðu
Bluetooth-valmynd tækisins.