Nokia BH 109 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Hlaða skal rafhlöðuna áður en höfuðtólið er tekið í notkun.

Viðvörun:

Aðeins skal nota hleðslutæki sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessari

tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og

slíkri notkun getur fylgt hætta. Notkun ósamþykktra hleðslutækja getur valdið

eldhættu, sprengingu eða haft aðra áhættu í för með sér.

Þegar hleðslutæki er tekið úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.
1 Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.

2 Tengdu snúru hleðslutækisins við tengi höfuðtólsins. Rauða stöðuljósið verður

grænt þegar rafhlaðan er fullhlaðin.

3 Hleðslutækið er fyrst tekið úr sambandi við höfuðtólið, síðan úr

rafmagnsinnstungunni.

Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að 8 klst. í tali og allt að 200 klst. í biðstöðu.
Þegar rafhlöðuhleðslan er lítil gefur höfuðtólið frá sér tón á 5 mínútna fresti og rauða

stöðuljósið blikkar.
Hleðsla rafhlöðunnar könnuð

Ýttu á rofann þegar höfuðtólið er tengt við farsímann. Ef stöðuljósið er grænt er

rafhlaðan nægilega hlaðin. Ef ljósið er gult gæti þurft að hlaða rafhlöðuna bráðlega. Ef

ljósið er rautt skaltu hlaða rafhlöðuna.