Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Þetta tæki er með innbyggða, fasta, endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar sem það getur
skemmt tækið. Farðu með tækið til næsta viðurkennda þjónustuaðila til að skipta um rafhlöðu.
Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-3, AC-4, AC-5, AC-8, DC-4 og DC-9 . Númer
hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd af einu af eftirfarandi: E, X, AR,
U, A, C, K, eða B.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar notkunartíminn er
orðinn mun styttri en eðlilegt er skaltu fara með tækið til næsta viðurkennda þjónustuaðila og láta skipta um rafhlöðu.
Aðeins skal endurhlaða rafhlöðuna með hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki.
8
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt að
tengja hleðslutækið, aftengja það síðan og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar
mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum.
Þegar hleðslutækið er ekki í notkun skal taka það úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðu
í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef
hún er ekki í notkun.
Rafhlaðan skal ávallt höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma
rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum samkvæmt reglum á hverjum stað. Skila skal
þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki.
Notkunartími er aðeins til viðmiðunar. Raunverulegur notkunartími fer eftir ýmsu, t.d. stillingum tækisins, aðgerðum sem
notaðar eru (eða keyra í bakgrunninum), ástandi rafhlöðunnar og umhverfishita.